Gefðu af þér!

Stór hluti af hjónaböndum og samböndum eru byggð á þörf en ekki kærleik, sem útskýrir hversu óreiðukennd þau eru oft á tíðum.

Í dag, gefðu af þér án þess að hugsa um hvað þú færð í staðinn.  Þetta snýst ekki bara um að aðrir láti þér líða vel, heldur hvernig þú lætur öðrum líða.

love

Brjóttu upp mynstrið!

Frjáls vilji er það sem aðskilur manninn frá dýrunum. Sjáðu fyrir þér ógnarlegt ljón sem eltir upp antílópu á engjum afríku, heldur þú að ljónið myndi staldra við og hugsa sig um og fá móral yfir því að antílópuna, nei að sjálfsögðu ekki, þetta er matur í maga.

En maðurinn aftur á móti hefur þann eiginleika að geta stoppað. Settu kraft frjáls vilja í verk í dag. Hugsaðu áður en þú framkvæmir og brjóttu upp skemmandi munstur.

munstur

Fastur/föst í sama andartakinu!

Lífið er stöðuglega að leggja fyrir okkur þrautir og senda fólk í okkar veg til að veita okkur tækifæri til að vaxa og þroskast. Við höldum oft að ef pössum uppá að stjórna öllum kringumstæðum og jafnvel ráðskast með fólk til að tryggja það að ekkert gerist sem gætið ruggað bátnum og rakað því skjóli sem veldur okkur falskt öryggi og skjól, enn föttum ekki að við erum í raun að arðræna okkur sjálf frá því að vaxa og dafna og þroskast og blómstra sem manneskja, sem er hin raunverulega ástæða að lífið ýtir við okkur með kringumstæðum og fólki sem truflar okkar örugga tempó.  Ef þú finnur þig í því að vera stöðuglega að endurtaka þig í tilbreytingarsnauðu lífi þá ættir þú að finna samsvörun með Bill Murray í myndinni Groundhog Day.  Nú er lag að gerast framsækin og taka nokkrar nýjar ákvarðanir.

Taktu djarfar ákvarðanir í dag!

Þú veist aldrei fyrir fram hvaða skref eða hvaða ákvörðun færir lukkuna þér í vil á vogaskálum lífsins. Sérhvert aukaskref eða ákvörðun leggst á vogaskálar lífsins, hvoru megin er algjörlega undir okkur sjálfum komið.

Taktu djarfar ákvarðanir í dag!

 

Bold moves


Breyttu heiminum-breyttu þér!

Allir hugsa um að breyta heiminum,
en enginn hugsar um að breyta sjálfum sér.- Leo Tolstoy

powerful_1


Gefðu þig undir hið ljúfa Ljós!

Hefur þú tekið eftir því að þegar þú færir þig nær spegli þá færist spegilmyndin þín nær þér um leið? Þegar þú lætur Ljósið í fyrsta sæti, þá mun Ljósið setja þig í fyrsta sæti.

Í dag, láttu ljósið vera í fyrsta sæti og leyfðu Ljósinu að taka sér stað sem uppspretta alls þess góða í lífi þínu.

Ljósið


Segðu satt!

Það er mun auðveldara að segja fólki það sem það vill heyra, heldur en að segja sannleikann. Enn vittu til að þér líður mun betur með sjálfan þig þegar þú ert heiðarleg(ur).´

Í dag, hafðu hugrekki til að segja hvað þér liggur á hjarta. Því erfiðara sem það er því betur mun þér líða á eftir.

 

segðu satt


Láttu slag standa!

 Sérhver stund sem líður hjá kemur ekki til baka. Allt það sem við ætluðum að gera en gerðum ekki er glatað tækifæri sem getur aldrei orðið eins og það hefði geta orðið. Ef við horfum á hlutina með þessum hætti þá getur þetta verið gríðarleg hvatning sem fær mann til að framkvæma og gera í stað þess að hika og missa af.

Í dag er dagurinn! Stökktu á eitthvað sem þú hefur ekki gert áður. Taktu áhættu. Lífið líður of hratt hjá!

 

  taktu áhættu


Stöðug endurspilun

Þú hefur augu, enn hvað er það sem þú sérð í raun og veru? Í amstri dagsins förum við gengum sömu rútínuna, göngum yfir sömu göturnar og hittum sama fólkið og líf okkar verður eins og bíó mynd sem er föst á endurspilun og við hægt og hljóðlega verðum ónæm fyrir fegurðinni í kringum okkur og hættum að njóta allra þeirra góðu gjafa sem eru færðar í veg okkar á hverjum degi.

Í dag, taktu þér tíma til að staldra við og horfa og skynja hvað er í raun og veru í kringum þig. Opnaðu augun þín fyrir stærri sýn og veruleika.

endurspilun

 

 


Draumar rætast!

Ástæðan að við finnum okkur stundum föst í sömu sporunum er vegna þess að við óskum eftir svo litlu. Þegar við eldumst þá verðum við varkár og förum alltaf öruggustu leiðina. Við gleymum að láta okkur dreyma.
Manneskja er ekki manneskja ef hún á sér ekki drauma.  Það er einmitt það sem gerir okkur frábrugðin. Láta dýrin sér dreyma um eignast fallegt hús, eða hitta sálufélaga sinn eða færa ljós inní heiminn?

Í dag, ímyndaðu þér að þú hafir töfrasprota sem lætur óskir þínar rætast, hvað er það sem þú þráir. Sjáðu það fyrir þér, upplifðu það og leyfðu því að gerast. Gerðu þrár þínar kunnar. Draumar þeir rætast. Ég sé það á hverjum degi.

dreams_default

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband