Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Vertu hamingjusamur!


Ertu hamingjusamur? Ef ekki þá er aðeins ein(n) sem getur breytt því.
 

Það eru til fleiri hundruð kennslur og sögur sem leggja áheyrsluna á andlegs mikilvægi þess að vera glaður, að skapa og breyta andrúmslofti og kringumstæðum í stað þess að sveiflast til og frá við því sem verður á vegi þínum, mikilvægi þess að verða ker hamingju þar sem ljósið getur sent sína geisla í, að setja útí andrúmsloftið það sama og þú ætlast að fá til baka, en samt sem áður þegar allt kemur til alls þá er ákvörðunun þín og aðeins þín dragðu fram bros og vertu glaður eða glöð. 


smile


Að ná ekki í mark!

Ímyndaðu þér eitt af þeim áramótaheitum sem þú hefur gert í gegnum tíðina og ímyndaðu þér svo að þú mættir velja þér eitt og ekki nóg með það að það áramótaheit myndi rætast og haldast að eilífu. Hvaða áramótaheit yrði fyrir valinu?

Komdu þér upp kerfi - kannski vin sem hjálpar, gula miða, eða hvað sem er sem getur hjálpað að klára verkið. Það er í góðu lagi að biðja vin um að ýta við þér til að færa þig nær markmiðinu til þess eru þeir.

áramótaheit

Kveðja,
Sólargeislinn


Hugurinn!

Hugurinn og börnin - hvað eiga þau sameiginlegt? Jú þau eiga það til að hlaupa frjáls um án leiðbeiningar.
Mörg okkar hafa enga stjórnun yfir hugsunum okkar, við leyfum huganum að vafra um fara fram og til baka og kalla fram hluti líkt og eftirsjá, reiði, áhyggjur, ótta eða aðra vanlíðan eftir vild. Það að aga hugann er kjarninn fyrir því að þroskast andlega, það kann að vera eitt af því erfiðasta sem við gerum því í eðli okkar erum við hrædd við breytingar.

Í dag, höldum hugsunum okkar í núinu. Og veljum vel hvað við leyfum huganum að dveljast við. Og þú hefur tekið skref í þá átt að taka stjórn yfir þinni hamingju.

Gömul speki segir.

Sá maður sem hefur ekki stjórn á huga sínum verður ávalt undir þann kominn sem hefur slíka stjórn.

hugsanir

Kveðja,

Sólargeislinn

 


Af hverju erum við ekki alltaf uppfyllt?

Kveðja,
Sólargeislinn


Lifðu!

Lífið er fallegt.
Sérhver stund er veisla af gjöfum ljósins, en stundum gleymum við okkur í dagsins amstri (líka ég) þanning að við missum af því að njóta þeirra gjafa sem eru allt í kringum okkur.

Taktu 30 mínútur af þínum tíma í dag og alla daga - þar sem þú ert ein(n) með sjálfum þér á stað þar sem þú getur setist niður, horft, hlustað, lyktað, skynjað og upplifað og njótið þess að vera þú.

Þegar við höfum komist á þann stað að geta notið þess einfalda og þess stórbrotna þá höfum við sannarlega tekið skref í þá átt að eignast algjört frelsi.

0OX7F3CACGOADVCARPYXGACAB8843XCA6J3P74CAPYS17CCA2X0B9HCAIOM28LCAM02NV1CAHFELGQCALRT1ZRCACYQDF8CA9K313ACANY23X7CAE0B6AECAJJM0SBCA6HM0FICASASIBZ

Kv. Sólargeislinn.


Einn kaffi takk!

Það er nokkuð skondið með okkur mannfólkið að við höfum þessa undarlegu þörf og jafnvel skyldu til gagnrína og jafnvel dæma aðra án þess að hafa unnið okkar heimavinnu. En hvernig væri að við myndum spyrja okkur áður en við svölum þessari þörf. " Væri ég jafn fljót(ur) að bjóða þeim sem ég gagngríni eða dæmi í heimsókn eða kaffi?" Ef svarið er já þá láttu verða að því að bjóða viðkomandi í kaffi ásamt tveimur teskeiðum af umburðarlyndi að sjálfsögðu. En ef við erum ekki tilbúin að bjóða viðkomandi í kaffi eða heimsókn þá skulum við líka halda aftur af því að dæma eða gagngrína líka.

Og þá muntu þú fá eigin(n) bolla af ást og kærleik frá alheiminum í staðinn.

 

kaffi


Að gefa!

Hefur þú gefið af þér í dag?

"Ef bálið er að logna út hreyfðu þá við viðnum og það mun brenna á ný. Ef ljós sálarinnar skín ekki skært hreyfðu þá við sálinni svo að ljósið megi spretta fram" Tilvitnun úr The Zohar.

Þetta snýst allt um að vera virkur. Ef við viljum vera uppfyllt í lífi okkar þá verðum við að eiga við líf okkar, gerðu eitthvað sem þú ert ekki vanur að gera eitthvað sem er ekki í hinu daglega prógrammi. Taktu þér tíma í vikunni til að gefa af þér. Að gefa af sér án þess að ætlast að fá eitthvað til baka er frelsandi fyrir sál mannsins.  

flower-2

 


100% athygli!

Þegar einhver er að deila einhverju með þér eða er að tala við þig, gefur þú þeim aðila 100% athylgi eða ertu að renna yfir í huganum yfir listann yfir alla þá hluti sem þú átt eftir að gera eða ert skyndilega komin(n) á sólarströnd langt í burtu?

Það er í mannlegu eðli þörf fyrir að deila með öðrum okkar innstu hugsanir og tilfinningar án þess að þurfa að óttast að vera hunsaður eða enn verra að verða dæmdur fyrir að tjá sig. Að vera viljugur að hlusta og leggja sig fram í því að vera með opin huga er stórkostleg gjöf til að gefa öðrum. 

Í samtölum, samskiptum þínum í dag leggðu þig þá fram í því að leggja við hlustir þegar einhver talar við þig. Ef þér finnst erfitt að bera kærleik til viðkomandi, ímyndaðu þér þá að þú sért að tala við einhvern úr þinni fortíð sem þú elskar og berð mikla virðingu fyrir. 

Hafið góða helgi og látið ljós ykkar skína inní líf annara.

ljós

Kveðja,
Sólargeislinn.


Gleðilegt sumar!

Þá er sumarið formlega loksins komið og tekur á móti okkur með brosi á vör. Mikið var fallegt veður í dag og gefur vonandi tóninn fyrir því sem framundan er.

Gleðilegt sumar.

Sólargeislinn.


Viltu heyra leyndarmál?

Eins og margir vita þá er Madonna nemandi í fræðum Kabbalah langar að deila með ykkur myndbroti þar sem gefur góða mynd af því sem hún er að gera.
Madonna hefur verið mjög virk í því að nota frægð sýna til góðs og eins og var í fréttum nýverið að þá var hún á leið til Malawi sem er þorp í Afríku þar sem er mikil neyð og mikið af munaðarlausum börnum og eyðnissmituðum börnum. Madonna hefur lagt The kabbalah center lið í verkefnum sem bera nöfnin Raising Malawi sjá kynningar myndband og eins í verkefni sem ber nafnið Spiritually for kids sjá kynningar myndband 

Sjá myndband um leyndarmál Madonnu

Smella hér


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband