Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

The Moses code

The Moses code, mynd frá leikstjóra The Secret, Drew Heriot sem er ástralskur leikstjóri, flott mynd sem er að mínu mati rökrétt framhald af Secret myndinni og kemur inná þá hluti sem mér fannst vanta í The secret.

Hvað gerði Jesú frá aldri 12-30?

Heimildarmynd frá National Geographic um æviskeið Jesú frá 12- 30 aldurs sem lítið hefur verið vitað um og vantar alveg í biblíuna.


The rivals!


Children of God - David Berg

Áhugaverð umfjöllun um David Berg ( Ástarspámaðurinn) sem stofnaði Children of God 1968 og færði trúboð á alveg ótrúlegt plan og kom með ótrúlegar hugmyndir svo sem Flirty fishing þar sem hann sendi konur út á akurinn til að sofa hjá mönnum og fá þá til að taka upp trú á jesú í framhaldi, alveg ótrúleg frásögn og virkilega víti til varnaðar og áminning um mikilvægi þess að setja skýran lagaramma utan um söfnuði og fríkirkjur til að koma í veg fyrir að menn eins og David Berg hafi skjól til að starfa án ábyrgðar og eftirlits í nafni trúarinnar.

 

3.hluti

4.hluti

5.hluti


Skemmtileg pæling.


Tími til að blása!

Hversu langt líður frá fæðingu hugmynda þinna og framkvæmdar?

Þegar veröldin var sköpuð, þá var ekkert hik á milli hugmyndar og framkvæmdar Þegar Skaparinn sagði verði ljós þá varð ljós samstundis.

Í dag, er dagurinn til að segja verði ljós!  Dustaðu rykið af einhverri góðri hugmynd sem þú byrjaðir einhvern tíman á og kláraðir aldrei.

Blástu nýju lífi í það, og verði ljós.

blástu


Verði Ljós!

Eru blessanir þínar eru lokaðar..... í öðru fólki.

ljós


 

 

 

Taktu ljósið aftur!  Farðu til einhvers í dag sem þú hefur átt erfitt með að hitta auglitis til auglitis, og láttu hana eða hann vita með framsæknum hætti að þau hafi rétt fyrir sér með eitthvað sem þið hafið deilt um og vertu fyrri til að leita sátta.

Því erfiðra sem það er að mæta þessum einstaklingi, því meira Ljós munt þú afhjúpa inní þitt líf.  Svo í guðana bænum farðu og náðu aftur í það Ljós sem þú hefur verið að gefa öðru fólki! 

 


Fullvissa!

 fóstur

í þá níu mánuði sem við erum í móðurkviði áður en við fæðumst, þá heldur engill á kerti fyrir okkur, og kennir okkur leyndardóma alheimsins.  Við meðtökum allt, frá upphafi til enda heimsins.  Þegar við svo fæðumst, þá blæs engillinn blíðlega á efri vör okkar og lætur okkur gleyma öllu því sem við höfðum lært.  En samt eru upplýsingarnar en til staðar í sálu okkar í undirmeðvitund okkar, sú hugmynd að Skaparinn leggi slíkan grunn í okkar sál, og það er á þeim grunni sem við byggjum okkar meðvitund upp.

Þessar minningar sem við fáum í móðurkviði eru grunnurinn af því sem Kabbalistar kalla fullvissa.

Úr bókinni Becoming like God eftir Michael Berg.

 

 


Jafnvægi!

Allir eru að leita að jafnvægi ekki satt?  Bankareikning sem er í jafnvægi, jafnvægi í samskiptum okkar við annað fólk, jafnvægi á milli vinnu og leiks.  Jafnvægi. 

jafnvægiEn flest okkar eru í ójafnvægi að einhverju leiti, er það ekki?  Við tökum of mikið og gefum of lítið, við étum eins og svín, vikur, mánuði og jafnvel ár og förum svo í skyndiátak og ætlumst til að fá skyndilausn hér og nú sem gengur yfirleitt ekki eftir og aftur byrjar sama hringrás.  Við erum kuldaleg og lokuð eina mínútuna, opin og viðkvæm hina.  Það er ekki furða að heimurinn sé eins og hann er við erum svo útúr kortinu.  Ef þú hefur ekki heyrt um þessa kabbalisku kennslu nú þegar, leyf mér þá að vera sá fyrsti til að segja þér að : mannkynið er miðpunktur alheimsins.  Það sem við köstum fram í alheiminn er það sem hann mun senda til baka.

Í dag leitaðu jafnvægis.  Reyndu að finna út hvar þú hefur farið langt útaf veginum í tengslum við þína hegðun.  Kannski hefur þú verið sérstaklega lokuð, lokaður og niðurlút(ur) nýlega, finndu leið til að lyfta þér upp og drífðu þig út á meðal fólksins.  Kannski hefur þú verið dyramotta fyrir hvern þann sem hefur komið inní líf þitt, svo æfðu þig í því að meðtaka til tilbreytingar.  En kannski ert þú bara fullkomin(n) ef svo er þá vildi ég gjarnan vita hvert leyndarmálið er.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband