Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Bók hinna dauðu frá Tíbet.

Frásögnum ber ekki saman.

Ég hef lengi haft gaman að skoða allskonar hluti og vega og meta, við lesningu guðspjallanna þá rekst maður aftur og aftur á það að frásögnum ber ekki saman og í raun er öll bókin þannig, og það vekur upp fleiri spurningar um sanngildi þeirra sem rituðu niður frásagnirnar, gott dæmi eru akkúrat guðspjöllin sem dæmi matteus sá sem skrifar guðspjallið sem ber hans nafn, var t.d uppi mörg hundruð árum á eftir daga Jesú á jörðini og er guðspjallið í raun skráning (hear say ) á sögum sem hann heyrði hér og þar, og þar liggur hundur einmitt grafinn að flest þessara handrita eru undir áhrifum annarra, t.d. las ég skemmtilegt handrit um daginn, handrit Enoch sem oft er minnst á í biblíunni, var góður vinur Móse og hátt skrifaður Guðsmaður en komst samt ekki einhverja hluta vegna í biblíuna, þeir sem lesa handrit Enoch og opinberunarbók Jóhannesar gætu fengið það á tilfinninguna að þeir væru að lesa sama handritið samt var Enoch uppi löngu áður en Jóhannes.

Ég tek fram að þetta er mín skoðun og er ekki ætluð til að særa einn eða neinn, enda hef ég lifað eftir góðu kabbalisku ráði sem er á þessa leið: Ekki trúa mér, þú verður að sannreyna alla hluti sjálfur.

Nokkur dæmi um frá sagnir sem ber ekki saman.

Jóhannesarguðspjall 10:30 Ég og faðirinn erum eitt

Jóhannesarguðspjall 14:28 Þér heyrðuð, að ég sagði við yður: ,Ég fer burt og kem til yðar.` Ef þér elskuðuð mig, yrðuð þér glaðir af því, að ég fer til föðurins, því faðirinn er mér meiri.

Matteusarguðspjall 28

 1Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina.

Markúsarguðspjall 16

1.Þá er hvíldardagurinn var liðinn, keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann.

Jóhannesarguðspjall 21

1.Fyrsta dag vikunnar kemur María Magdalena til grafarinnar svo snemma, að enn var myrkur, og sér steininn tekinn frá gröfinni.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband