Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Settu skvettu af kærleik í málið.

kærleikurEf það er aðeins eitt sem við getum lært af Kabbalah, megi það þá vera það að tilgangur þessa visku er að kenna og hjálpa okkur að elska hvort annað og bera umhyggju fyrir hvort öðru.  Þú getur vakið dag og nótt í þeim tilgangi að læra að verða betri manneskja, en ef þú berð ekki umhyggju fyrir öðrum en sjálfum þér, þá munt þú aldrei uppgötva og skilja hvað það er að lifa eins og Ljósið.

Í dag, settu þá ást og kærleik í allt sem þú gerir.  Hvort sem það er að vera almennilegur við strætóbílstjórann eða þína fyrrverandi, megir þú koma frá þeim stað að þú leggir ást og umhyggju í allt það sem þú gerir.  Það er hinn sanni tilgangur með því að lifa samkvæmt Kabbalah.


Rís upp!

rise upEf þú finnur þig einhvern tímann í þeirri stöðu að þú upplifir sársauka eða þjáningu þá er besta leiðin til að koma sér út úr þeirri stöðu er að byrja að deila og gefa af þér til annarra.  Með því að nýta sársauka þinn til að hjálpa öðrum þá dregur þú niður gríðarlegt magn af ljósi inní þitt líf.  En ef þú dvelur í þínum eigin sársauka, jafnvel þótt að það væri réttlætanlegt að gera það, þá munt þú aðeins sökkva dýpra í ótta og þunglyndi. 

Í dag, finndu leið til að deila með þeim sem eru í svipaðri eða verri stöðu en þú.  Þannig munt þú rísa uppúr þínum eigin sársauka.


Deildu með þér.

Þú þekkir þá tilfinningu þegar samband fer að staðna?

deildu með þérSamkvæmt Kabbalistum, þá er ástæðan líklega sú að þú ert stöðuglega að þiggja án þess að gefa á móti.  Þetta framkallar stöðnun, rétt eins og vatnið ef það fær ekki að flæða þá fúlnar það sama á við um að Ljósið stöðvast þegar flæðið er hindrað eða stoppað.  Það er ekkert að því að meðtaka- við eigum að meðtaka til þess er ætlast af okkur, en ef þú gefur ekkert af þér, þá verður það sem þú meðtekur takmarkað og ófullnægjandi.

Í dag, gefðu af þér kærleik, ást og umhyggju, deildu tíma þínum með öðrum, njóttu vináttu þeirra sem þú átt að, einfaldlega deildu með þér.


Að gera við sjálfan sig.

fixUmburðarlyndi er einn af miðpunktum í þeirri kennslu sem viska Kabbalah kennir, og umburðalyndi þarfnast stöðugar æfingar við. Í öllum þeim samskiptum sem við eigum við okkar ástvini, fjölskyldu, og vini þá eigum við það til að vilja breyta þeim sem eru í kringum okkur í stað þess að meðtaka þau eins og þau eru og elska þau án skilyrða.  Ekki reyna að gera við þau, einfaldlega meðtaktu þau og elskaðu.

Í dag, þegar þú finnur þörf fyrir því að draga athyglina á hvað aðrir eru að gera rangt, snúðu þá þessu við og dragðu athyglina að sjálfum þér.  Taktu ábyrgð yfir því sem á sér stað innra með þér og spyrðu sjálfan þig að því hvaða sáðkorn af neikvæðni hefur sloppið fram hjá þér, gæti verið óuppgerður sársauki, því að manneskjan er í raun að spegla þig.


Gleðileg jól!

gefaÞað eru algeng mistök sem við öll gerum einhverstaðar á leiðinni í okkar andlegu göngu, og það er þegar við byrjum að setja okkur á hærri hest og dæma aðra fyrir að hafa minni þekkingu en við og fyrir að vera minna andleg.  En staðreyndin er sú að við erum hér öll til að hjálpa hvert öðru að rétta fram hjálpar hönd til að reisa hvort annað við og hjálpa hvort öðru uppá næsta stig.  Öll sú viska og þekking sem við búum yfir er til einskins og marklaus ef við förum ekki og lifum eftir því grundvallar atriði að elska náungan eins og við elskum okkur sjálf.  Í dag ef þú finnur þig á þeim stað að vera með dæmandi hugsun gangvart náunganum að hann sé lægri settur en þú, minnstu þá þess stundar þegar þú varst í sömu sporum.  Finndu leið og legðu þig fram við að leggja fram hjálparhönd til að reisa hann við, rétt eins og einhver gerði fyrir þig á sínum tíma.

Ég vil líka nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla og það er mín einlæga ósk að þið megið eiga gleði og friðarjól.

jól


Gerðu það sem þú getur.

svart og hvíttFólk eyðir oft allt of miklum tíma í óvissuhluti og vita þarafleiðandi ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga vegna þess.  Kabbalistarnir hvetja okkur að eyða ekki of miklu púðri í þá hluti sem óvissa ríkir um og rækta frekar þá hluti sem þú ert viss um.  Ljósið hefur sýnt þér leiðina þangað, taktu því þeim hluta enn fastari tökum og þá munt þú fá ennþá betri sýn á hlutina.

Mundu að okkar neikvæða hlið vill fá athygli þína og tíma yfir á þá hluti sem þú ert óviss um, til þess að halda okkur frá þeim hlutum sem við þurfum að gera og vitum að virkar fyrir okkur. 

Í dag, þegar þú veist ekki hvað þú átt að gera, gerðu þá það sem þú veist og kannt, og gerðu það af meiri krafti og innblæstri.
 


Áfram, Áfram!

áfram áframEf okkar andlega vinna og eftirvænting einstaklingsins er byggð á tilfinningum einum fyrir hvern dag sem hann lifir, þá er eitt víst að hann mun fyrir víst falla og missa marks.  Kabbalistarnir minna okkur á það að við verðum að vinna okkar andlegu vinnu óháð tilfinningum, jafnvel þótt að við séum ekki í neinu stuði til þess og tilfinningarnar vilja toga okkur í aðra átt.

Það er auðvelt að vera andlegur þegar þú ert fullur af orku og eftirvæntingu, en það er ekki svo auðvelt þegar þú finnst þér vera tómur og eftirvæntingin farinn.  Samt sem áður er slíkur tími akkúrat sá tími sem þú getur afhjúpað mikið ljós.

Í dag, reyndu að finna þau svið þar sem þú finnst þú hafa fengið nóg, og á þeim stundum þar sem það síðasta sem þú vilt að deila af þér og tengjast við andlega hluti.  Mundu að lærdómurinn er sá að þrýsta sér áfram á slíkum stundum.  Og oft á tíðum er þetta auka skref sem gerir gæfu munin fyrir þig, bæði í þínu lífi og annarra.


Skapaðu þitt kraftaverk!

Samkvæmt fræðum kabbalista þá erum við stödd í mjög hagkvæmri tíð til að skapa kraftaverk.  Það er þó ekki þar með sagt að kraftaverk eigi að verða NÚNA.  Heldur má frekar segja að nú sé hagkvæm tíð til að sjá þau gerast.  Svo nú er upplagt að taka næstu daga að vera með hugann við það, þú getur fræðst um þá tækni sem til þarf til að kalla fram kraftaverk, og leyfi ég mér að benda á afbragðsbók sem kallast

God Does Not Create Miracles, You Do, eða Guð Skapar Ekki Kraftaverki Heldur Þú. Bókina má fá á www.amazon.com

goddoesnotbook-large

Taktu niður glósur og settu síðan tæknina í verk.

Hjálparstarf, er í eðli sínu að sú framkvæmd að gefa eða styrkja þá sem eru í þörf.  Hjálparstarf í Kabbalah er líka það sem breytir örlögum.  Að gefa, hvort sem það sé tími, peningar, þekking, vinnuframlag eða eignir er mjög kröftug leið til að kveikja ljós.  Því erfiðara sem það er að deila með sér eða gefa, eða með öðrum orðum, því lengra sem þú teygir þig, því meira ljós verður afhjúpað og þar af leiðandi stærra og meira kraftaverk.

Verum gjafmild í dag.  Enn í stað þess að gera hlutina útaf einhver er að þrýsta á þig til þess, gerðu það þá frekar með þeirri meðvitund að þú viljir vekja upp orku kraftaverka í lífi þínu fyrir allt næsta ár.


Kraftaverk.

engill 

Segjum sem svo, að engill kæmi og heimsótti þig í draumi, og hann myndi segja þér frá því að þegar þú myndir vakna næsta morgun þá fengir þú að upplifa kraftaverk á þeim degi, hvernig myndir þú hegða þér þann dag?

Með eftirvæntingu, tilhlökkun og gleði ekki satt? 

Kabbalistarnir útskýra fyrir okkur það að einmitt eftirvæntingin, tilhlökkunin og gleðin er hvatningin sem kemur kraftaverkum af stað í okkar lífi.  Þegar við vitum að kraftaverk sé á leiðinni og höfum eftirvæntingu, það opnar leiðina fyrir því að kraftaverk geti átt sér stað.  Okkar fullvissa um að kraftaverkið mun koma er sá kraftur sem kallar þau fram og lætur þau verða að veruleika.

Vertu full(ur) af eftirvæntingu í dag.  Vertu fullviss um að kraftaverk sé á leiðinni til þín.


Verði ljós!

Hvernig getum við fundið jafnvægi á milli daglegs lífs og andlega lífsins?

verði ljósÞú getur það ekki. Eina leiðin er að færa það andlega í allt sem þú gerir og tekur þér fyrir hendur.  Skiptir ekki máli hver vinnan er, þá er alltaf tækifæri til að koma með ljós í það umhverfi og því sem þú ert að vinna að.  Þú getur gert þetta með því að setja jákvæðar hugsanir og setja ljós í allt sem þú gerir, sama hvaða hlutverk sem þú kannt að hafa í lífinu, hversu smátt sem það kann að vera, þá er það risastórt ef þú skoðar málin út frá ljósinu.

Hvernig getum við sett meiri kærleik og umhyggju í vinnu þinni í dag?

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband