Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Sendum sjálfselsku okkar í sumarfrí.

Eitt af æðstu boðorðum okkar er að elska náungan eins og við elskum okkur sjálf, í sjálfinu liggur hundurinn grafinn og í raun allt það sem miður fer í lífinu er sprottið frá þeirri uppsprettu, og er í raun drifskraftur þeirra sem halda að þeir hagnist á óförum annara sér til framdráttar, en elsku vinir það er ekki svo maður uppsker það sem maður sáir, hvort sem það er nú eða seinna. Eitt er víst að ef þú kemur illa fram við aðra þá kemur það niður á þér fyrr en síðar. Því er svo mikilvægt að stíga útúr því að miða allt við okkur sjálf, spyrjum heldur hvað get ég gert til að bæta líf náungans í dag, það getur verið eitt lítið bros, eitt lítið hrós í raun bara að gefa ljós frá sér þá er stór sigur unninn.

Ég hvet alla sem lesa þessa hugleiðingu að prófa að taka einn dag og hugsa bara um þann dag hvernig þú getur bætt líf þeirra sem eru í kringum þig.

Sólargeislinn


Uppgötvaðu Kabbalah.

Setti hér skemmtilegt kynningarmyndband um Kabbalah sem er yfir 5000 ára gömul viska sem fær mann til að hugsa.  

mages

Smella hér


Hér fyrir neðan eru skemmtilegar pælingar til að hugsa um.

  1. Þarf ég að trúa á guð til að lifa andlegu lífi? Smella hér!
  2. Af hverju getum við ekki lifað öll í sátt? Smella hér!
  3. Hvernig getum við gert til að breyta heiminum? Smella hér!

www.kabbalah.is


Framtíðarland.

Nú þegar fer að líða að kosningum vaknar upp sú von að það komi loks fram einhver stjórnmálamaður með hugsjónir og bein í nefinu til að vinna að þeim og veit það að hugsjónir eru ekki til sölu.  Það er mín skoðun að Ísland stendur á ákveðnum tímamótum og  er kannski í smá tilvistarkreppu því nú er ákveðin undiralda sem kraumar undir yfirborðinu um hvers konar framtíð við viljum eiga hér á íslandi.  Viljum við skapa fjölskylduvæna þjóð þar sem fjölskyldugildi eru verðmæt og viljum við skapa þjóð þar sem allir eru jafnir án allra fordóma, viljum við fórna náttúrunni án þess að horfa á stóru myndina?  Þó að frjálshyggjan er góð og gild þá fylgja henni líka gallar sem er sú staðreynd að hinir ríku verða ríkari en hinir snauðu greiða kostnaðinn.  Alla vega er orðið tímabært að kveða niður gamla drauga sem eru orðnir ellismellir fyrir löngu svo sem, verðtrygging, stimpilgjöld, bensíngjald, tollar. Ég er á móti því að fyrirtæki geti falið sig á bakvið það að við séum eyja og þess vegna er ekki virk samkeppni frá öðrum löndum og í skjóli þess er haldið uppi ofurháu verðlagi hér á landi.  Hvar eru stjórnmálamennirnir sem vinna fyrir þjóðina afhverju er ekki unnið að því að opna landið svo að það verði virk samkeppni og fyrirtæki þurfi að standa sig í þeirri samkeppni eins aðrir, er það ekki frjálshyggjan í hnotskurn?

Alla vega þá er kominn tími á að gera róttækar breytingar og kannski er leiðin sú að skipta leikmönnum útaf eins og gert er í íþróttum þegar menn eru ekki að standa sig.

Einn voða pirraður, LoL Nei í raun ekki en þetta er bara smá pæling.

 

 

 


Hippahátíð í eyjum.

 1174464153_vido

Undafarin ár hefur verið haldin stórskemmtileg hátíð í Vestmannaeyjum sem nefnist Hippahátíðin og eins og nafnið gefur til kynna þá er þessu tímabili gerð góð skil og menn og konur draga fram gömlu góðu mussurnar og hippa glingur og halda hátíð með bros á vör.

Meðal annars verður þjóðlagakvöld þar á meðal eru nokkrir eðal tónlistarmenn sem ég á pínulítið í eins og Sæþór Vídó sá sem er á myndinni , Davíð Arnórs og Pabbi & Beta ( Hermann Ingi & Elísabet) ásamt fleirum stórgóðum tónlistarmönnum.

Frábært framtak og það er ekki laust við að maður langi bara að skella sér til eyja og taka þátt í gleðinni.

Hver man ekki eftir " All we are saying is give peach a chance"

 


Kabbalah.is

Nýlega var sett á laggirnar áhugamannafélag um Kabbalah á íslandi og hefur verið sett upp síða í tengslum við það og eins eru fræðslufundir og námskeið í boði fyrir þá sem hafa á huga á að skoða þessu merku fræði, hvet ykkur að kíkja á hana og kynna ykkur málið.

Kabbalah.is


Hvað er Fíkn?

Ég hef oft verið að velta fyrir mér fyrirbærinu fíkn og þá í tengslum við sálarlega fíkn, hver er drifskraftur fíknar og hvaðan kemur hún og hvers vegna fíkn blindar augu þeirra sem fyrir henni verða. Það eru til allskonar fíklar, áfengis, eiturlyfa, matarfíklar, kynlífsfíklar ásamt fleiri flokkum, en sá flokkur sem ég vill einblína á núna er hópur sem hefur stundum alveg gleymst það er hópurinn trúarfíklar. 

Skilgreining á fíkn: Er hugtak sem er notað yfir einstakling sem endurtekur sífellt skemmandi hegðun, sálfræðileg fíkn felur í sér vellíðunartilfinningu og áframhaldandi neyslu til að forðast vanlíðunartilfinningu. 

Það er mín skoðun að fíkn er flótti frá vandamáli eða óþægilegum hlutum sem einstaklingurinn vill ekki takast á við eða þorir ekki að horfast í augu við, ávöxtur fíknar er algjör ringulreið og óreiða þegar hún nær hámarki öll rökhugsun og skynsemi hverfur, fíknin kemur beint úr sjálfinu okkar eða sjálfselsku og er meðal ástæðan fyrir því að fíklar miða allt við sig fyrst og fremst, eða að svala fíkninni fyrst sama hvað það kostar og jafnvel þótt það komi niðri á öðrum og sjálfu sér. Hvernig getur maður hætt að vera fíkill? Með því að taka ábyrgð á lífi sínu og viðurkenna fyrir sjálfum sér að þú sért ekki fórnarlamb heldur að þú hafir lykilinn í höndum þér að þínum örlögum hvort sem þau eru slæm eða góð, leita sér hjálpar þegar augun hafa opnast. Þrátt fyrir góðan ásettning margra til að hjálpa fíklum þá byrjar og endar lækningin fyrst og fremst hjá fíklinum sjálfum. 

Vil ekki heyra, vil ekki sjá, vil ekki segja frá. 

KFB4CPCAR9RJ18CASDQ70JCAMDODPECA8BTUVNCAEXH9CBCAHYK28ECAX32ITOCA1CYVK5CALG8Z5MCAJ9ENUSCAQXORVMCA6DA8HFCAW6ZJLVCAJ97QI4CAGTL7I2CA5N3ZUYCAX7RJU4

 

 


Góða helgi.

Jæja þá mun undirritaður láta ljós sitt skína í kvöld og annað kvöld með því að troða upp og  skemmta kópavogsbúum ásamt öðrum á Café Catalinu við Hamraborg.  Þanning að það verður lítið um blogg færslur um helgina. Ég óska öllum góðarar helgar og látið nú ljós ykkar skína við hvort annað og munum að ef við smælum framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.

Kveðja,
Hermann Ingi.

Smile4U


Vel heppnaður fundur.

Var í gær á fræðslufundi um visku Kabbalah, þar sem ræðumaður var Chagai Shouster kennari hjá The Kabbalah Center í London. Fræðin eru virkilega áhugaverð og eiga fullt erindi við íslendinga og alla þá sem vilja stækka sjóndeildarhringinn.


Mæli með þessu,

Kveðja,
Hermann


Fræðslufundur um Kabbalah.

Miðvikudaginn 14. mars 2007 verður haldin kynningarfundur kl. 20:00 um fræði Kabbalah í Sjálfstæðishúsinu við Hlíðasmára 19, 201 Kópavogi.

Farið verður yfir helstu atriði Kabbalah og með hvaða hætti sú viska á erindi í okkar líf í dag.

Ræðumaður verður Chagai Shouster sem er kennari hjá The Kabbalah Center í London,

fundur fer fram á ensku.

Ef þú hefur áhuga á að koma á fundinn þá getur þú skráð þig www.kabbalah.is

Kabbalah er ekki trúarbrögð eða trú, heldur tæknilegar upplýsingar fyrir sál mannsins.

what_is_kabbalah


Fasteignaverð á uppleið.

Frá því að Kaupþing tilkynnti að þeir ætluðu að bjóða á ný 100% íbúðarlán fyrir þá sem eru að útskrifast úr háskólanámi að þá hefur Glitnir komið fram með nýjung sem er hljóðar þannig að lántaki getur fengið 90% lánað af markaðsverði eignar meðan aðrir miða við brunabótamat og lóðarmat, svona á þetta að vera virk samkeppni þar sem fyrirtækin þurfa að svara strax og koma fram með nýjungar og bættari kjör fyrir viðskiptavinina til að halda sér í framlínunni, mætti bara sjást víðar og ef það væri alvöru samkeppni á t.d. matvælamarkaði og hjá olíufélögunum þá myndi kjör hér batna gríðarlega.

Frá greiningardeild Kaupþings.

Greiningardeild Kaupþings segir svo virðast sem líf sé að færast í fasteignamarkaðinn og bendir á að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi tekið kipp um janúar og hækkað um 2,3 prósent á milli mánaða. Bendi allt til áframhaldandi hækkunar á fasteignaverði í febrúar, einkum á fjölbýli, að sögn deildarinnar.

Greiningardeildin bendir á nýjar verðbólgutölur Hagstofunnar máli sínu til stuðnings og segir aukna samkeppni á íbúðalánamarkaði hafa skilað sér í aukinni eftirspurn húsnæðis og þar með sett þrýsting á áframhaldandi hækkun fasteignaverðs á næstu misserum.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband