Ertu búin(n) að sjá í gegnum þetta allt saman?
5.7.2007 | 19:08
Ert þú búin(n) að sjá í gegnum þetta. Allur heimurinn er á móti þér. Enginn nennir að hlusta á þig. Öllum er sama hvað verður um þig.
Þessi meðvitund er kannski besta vinnan sem er til í heiminum ef þú vilt vinna fyrir andstæðinginn, þar sem andstæðingurinn rekur þig áfram með harðri hendi til að fá þig til að horfa á myrkrið í stað þess að leita ljóssins. Og hver er árangurinn? Við eyðum dýrmætum tíma í að reyna að berjast við myrkrið í stað þess að leggja frekar að okkur að færa meira ljós og kærleik inní heiminn.
Svo í dag, gerðu þá allt sem í þínu valdi er til að tengja þig við ljós skaparans. Og hvað sem þú gerir vanalega, gerðu þá ennþá meira í dag, hvort sem það er bæn, hugleiðsla, að gefa af þér, standa gegn þrám sem eru fullar af sjálfselsku, eða gerðu allt það sem ég hef talið upp. Þetta er stórt verkefni til að takast á við miðað við þróun mála í heiminum.
Hvert er leynivopnið? Berðu dularfullt bros á andliti þínu allan daginn. Þá munt þú ekki aðeins stuða andstæðinginn, heldur gætir þú komið af stað miklum skriðþunga af jákvæðni og ljósi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.