Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Með sól í hjarta : )

Það kemur yfir mann góð tilfinning þegar sólin fer að láta bera meira og meira á sér og minna okkur á að sumarið nálgast nær og nær og ekki er laust við að tilhlökkun fæðist fram hjá manni eftir að grasið fari að grænka og tréin klæðist laufum á ný og allt verður svo lifandi og fallegt.

Ísland er yndislegt land þótt stundum gleymi maður kostum þess í svartasta skammdeginu en þegar vetur konungur ræður ríkjum þá er nauðsynlegt að hafa sól í hjarta til að lýsa upp skammdegið og færa ljós inní líf annara og gefa af sér þá verður lífið svo miklu skemmtilegra.

Eins og meistari Megas orðaði þetta svo skemmtilega: Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.

Kveðja,
Sólargeislinn


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband