Sama súpan - Önnur skeið!

sama súpan önnur skeið Rétt eins og sálin nærir líkamann, þá nærir Ljósið eins heiminn, líkaminn lifir ekki án sálar, og heimurinn lifir ekki án Ljóssins.  Ljóskraftur Skaparans er í öllum hlutum ávalt, andar lífi stöðuglega í lungu okkar.  

Þegar verktakinn hefur lokið að byggja hús, þá tekur næsta verkefni við.  Þegar Ljósið skapaði okkur, þá staldraði það við og heldur stöðuglega áfram að byggja okkur upp, dag og nótt. 
 
Stundum föllum við í þá gryfju að hugsa "enn einn dagurinn, enn ein krónan að vinna fyrir," "sama súpan, bara önnur skeið." En einmitt það er blekking, gildra.  Þetta er bragð sem andstæðingurinn fær okkur til að sóa stundum í okkar lífi.
 
Í dag,  vertu þá þakklát(ur) að þú sitir hér og lest þessi orð.  Þakklát(ur) fyrir þá staðreynd að þú færð annan dag til að lifa og brenna fituna utan af sál þinni.  Þakklát(ur) fyrir það fólk sem kemur inní þitt líf -  það góða og líka það slæma. Þakklæti, þakklæti þakklæti.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband