Need ministries Indlandi.
13.1.2007 | 17:42
Heyrði í dag frá vini mínum Rao frá Indlandi þar starfar hann sem forstöðumaður og stofnandi Need ministries sem er kirkja sem leggur ríka áheyrslu á hjálparstarf, neyðin er mikil í Indlandi og mikið af fólki sem er heimilislaust og fátæktin er ríkjandi á stórum svæðum. Nýverið var mikið flóð í þorpi sem kallast Amudala Lanka þar sem stór hluti þorpsins missti heimili sín, Need ministries sendi hóp af fólki til þorpsins og safnaði heimilislausum saman og hlúðu að þeim með mat og lyf og boðuðu fagnaðarerindið til fólksins, seinna dreifðu þeir vatni, teppum, fötum og öðrum nauðsynjum og tár steymdi niður kinnar fólksins sem skildi ekkert í því af hverju ókunnugt fólk sýndi þeim svona mikinn kærleika. Þetta mættu við taka okkur til fyrirmyndar að leggja meiri hjálparhönd til þeirra sem minna meiga sín og þjóð eins og Ísland sem er ríkulega blessuð af Guði að leyfa öðrum að njóta þess sem Guð hefur blessað okkur með því að það er mín einlæga trú að ef við gefum af því sem Guð hefur blessað okkur með gleði í hjarta þá eru engin takmörk fyrir því hversu mikið Guð muni blessa þig.
Bloggar | Breytt 26.10.2006 kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Need ministries
13.1.2007 | 17:41
Vinur minn Rao er kominn með heimasíðu fyrir það starf sem hann stendur fyrir ég vill endilega hvetja ykkur að kíkja á hana og sjá hvað hann er að gera. Slóðin er www.nmandco.org
Bloggar | Breytt 7.11.2006 kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frumsamin tónlist.
13.1.2007 | 17:41
Í tónlistarspilaranum má finna nokkur lög og texta eftir sjálfan mig
fyrstu þrjú eru frá 1991 . Ég þarfnast þín , Heilagi Faðir og Drottinn er konungur
þar eru spilarar eftirfarandi.
Söngur og kassagítar: Hermann Ingi
Trommur: Óskar Sigurðsson
Rafgítar: Hjalti Gunnlaugsson
Hljómborð: Birgir J Birgisson
Bassi: Páll
Næstu þrjú eru tekinn upp 1998, Frjáls, Án þín og Lífið
Þar eru spilarar eftirfarandi
Söngur og Kassagítar: Hermann Ingi
Hljómborð: Birgir J Birgisson
Rafgítar í Lífið: Björgvin Gíslason
Saxafónn í Lífið: Óskar Guðjónsson
Bassi: Ólafur
Tónlist | Breytt 6.12.2006 kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hermann Ingi og Lovísa Líf að syngja inn jólalag.
13.1.2007 | 17:41
Hermann Ingi og Lovísa Líf að syngja inn jólalag, erum búinn að setja lagið inná spilarann fyrir þá sem vilja komast í jólastuð.
Bloggar | Breytt 16.12.2006 kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)