Sjáðu sáðkornið!

sa_korn.jpgSérhver uppákoma, atburður í veröld okkar inniheldur sáðkorn.  Lífið kann að sýnast í óreiðu, tilviljunarkennt og ruglingslegt, þá er það aðeins vegna þess að við erum ekki meðvituð og skiljum ekki framvindu lögmálsins sem er sífellt er að störfum og kallast lögmál gjörða og afleiðinga, (sem þýðir í stuttu máli að allt sem við gerum og segjum hefur afleiðingar) í öðrum orðum viljum við aðeins sjá það áþreifanlega, þegar sáðkornið fer í moldina þá sjáum við það ekki, það þýðir samt að það sé ekki þarna og að í sáðkorninu sé tré sem á eftir að verða sýnilegt.

Vankunnátta fólks á þessari staðreynd hefur þær afleiðingar að það lifir í þeirri blekkingu að skyndilega komi ógæfa yfir eða skyndileg blessun og það botnar ekkert af hverju.  Ekkert gerist af því bara eða fyrir tilviljun, ekkert gerist bara skyndilega.  Stóra tréð í garðinum birtist ekki bara skyndilega, nei það þurfti að planta sáðkorninu fyrst áður en það varð sýnilegt.

Ef það er eitthvað í lífi þínu núna sem þú vilt losna við, þá verður þú fyrst að viðurkenna fyrir sjálfum þér þá staðreynd að já þú plantaðir einhver staðar sáðkorni í fortíðinni sem hefur nú borið ávöxt.  Skiptir engu hversu skyndilega og tilviljunarkennt það kann að vera, vertu þá viss um að það eru engin slys eða tilviljanir í Kabbalah.  Það er aðeins regla, gjörðir og afleiðingar af þeim gjörðum, framkvæmd og afleiðing framkvæmdar.

Í dag, plantaðu jákvæðu sáðkorni með því að gera þig aðgengilegan fyrir aðra og taktu ábyrgð á því sem þú hefur gert í hugsunarleysi, í sjálfselsku og öðru sem þú hefur gert á kostnað annars.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.6.2008 kl. 11:05

2 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Góð færsla hjá þér.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 30.6.2008 kl. 22:59

3 Smámynd: Kristleifur Guðmundsson

takk fyrir síðast

Kristleifur Guðmundsson, 3.7.2008 kl. 11:52

4 Smámynd: Kaleb Joshua

Sæll Meistari!

Já takk sömuleiðis, þetta var virkilega gaman og mjög ánægjulegt að hitta ykkur, við sjáumst aftur á þjóðhátíð í eyjum.

Kaleb Joshua, 3.7.2008 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband