Lítill sætur froskur!

Eitt sinn fyrir langa löngu var lítill sætur froskur sem féll ofan í risa stóra skál af rjóma. Litli froskurinn gat með engu móti komist uppúr skálinni en hélt þó áfram að spyrna frá sér í von um að komast uppúr. Hann spyrnti aftur, aftur og aftur þar til að rjóminn umbreyttist loks í smjör og þá gat litli sæti froskurinn hoppað úr skálinni á öruggan stað. 

Þetta er saga um mig og þig. Við erum froskurinn. Við getum annað hvort lagt árar í bát og gefist upp þegar við mætum því sem virðist óyfirstíganleg hindrun, eða þá spyrnt frá okkur aftur, aftur og aftur þar til vanblessun umbreytist í blessun. Þú getur þó verið fullviss um það að Skaparinn okkar vill að við lifum af þær orrustur sem við lendum í, og sigrast á okkar púkum, og skiptir engu um það hversu svart útlitið kunni að vera, þá er alltaf ljós á hinum endanum á göngunum. Áskorunin okkar er sú að viðhalda okkar fullvissu og halda áfram að berjast hina góðu baráttu.

Haltu áfram að spyrna frá þér í dag. Vertu viss að það er til lausn á hverju því sem herjar að þér og virðist yfirþyrmandi.

froskur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Ótrúlega sönn orð. Það er í sjálfu sér magnað hversu jákvæðan anda þú sendir frá þér í gegnum skrif þín hér. Tveir þumlar upp héðan ... og takk fyrir bloggin þín...

Lárus Gabríel Guðmundsson, 1.9.2007 kl. 03:34

2 Smámynd: Kaleb Joshua

Takk fyrir hlýjan hug og það er gott að vita að það er fullt af jákvæðu fólki þarna úti sem sendir frá sér jákvæða orku en það er akkurat það sem heimurinn þarfnast.

Kaleb Joshua, 1.9.2007 kl. 14:27

3 identicon

Þetta er verulega góð samlíking froggy minn.  Troða marvaðann þar til hann verður að smjéri.   pa

Hermann Ingi eldri (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband