Skapaðu þitt kraftaverk!

Samkvæmt fræðum kabbalista þá erum við stödd í mjög hagkvæmri tíð til að skapa kraftaverk.  Það er þó ekki þar með sagt að kraftaverk eigi að verða NÚNA.  Heldur má frekar segja að nú sé hagkvæm tíð til að sjá þau gerast.  Svo nú er upplagt að taka næstu daga að vera með hugann við það, þú getur fræðst um þá tækni sem til þarf til að kalla fram kraftaverk, og leyfi ég mér að benda á afbragðsbók sem kallast

God Does Not Create Miracles, You Do, eða Guð Skapar Ekki Kraftaverki Heldur Þú. Bókina má fá á www.amazon.com

goddoesnotbook-large

Taktu niður glósur og settu síðan tæknina í verk.

Hjálparstarf, er í eðli sínu að sú framkvæmd að gefa eða styrkja þá sem eru í þörf.  Hjálparstarf í Kabbalah er líka það sem breytir örlögum.  Að gefa, hvort sem það sé tími, peningar, þekking, vinnuframlag eða eignir er mjög kröftug leið til að kveikja ljós.  Því erfiðara sem það er að deila með sér eða gefa, eða með öðrum orðum, því lengra sem þú teygir þig, því meira ljós verður afhjúpað og þar af leiðandi stærra og meira kraftaverk.

Verum gjafmild í dag.  Enn í stað þess að gera hlutina útaf einhver er að þrýsta á þig til þess, gerðu það þá frekar með þeirri meðvitund að þú viljir vekja upp orku kraftaverka í lífi þínu fyrir allt næsta ár.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband